Sunday, August 12, 2007

Jæja gott fólk

Ég ákvað að prófa að færa mig hingað yfir eftir meira en eins árs samband við blog.central.is.
Það hefur verið stirt á milli okkar á tímum en oftast gengið þokkalega. Ég ákvað að sjá samt aðeins hvernig þetta er.

Ég átt mjög skemmtilega helgi, ég ákvað að fara á Dalvík með mjög góðum og útvöldum vinum :)
Ég var að villast þarna á föstudagskvöldinu eitthvað þegar ég hitti fyrrverandi tengdaforeldra mína fyrir utan leikfélagið. Þau buðu mér að koma með á Ljótu hálfvitana sem ég þagði auðvitað með þökkum. Er búið að vera stór ósk hjá mér að sjá þessa snillinga á sviði og þeir brugðust sko alls ekki væntingum mínum skal ég segja ykkur!

Ég sat við hliðina á dóttur þeirra sem er mjög góð vinkona mín, vorum reyndar alveg aftast og sáum ekki mjög mikið en því minna sem við sáum því hærri varð hávaðinn í okkur ;)
Við klöppuðum, blístruðum og "vúúú-uðum" alveg einsog vitleysingarnir sem við erum og sungum okkur alveg hásar :) Ég held að mestu lætin hafi verið í okkur :Þ

En þetta var þrælmagnað, ég gisti svo inn á Akureyri þá nótt en kom aftur á laugardeginum og gisti þá yfir nóttina heima hjá foreldrum vinkonu minnar ásamt mjög mörgum í viðbót :)

Kíktum í Bakaríið í heitar lummur og kakó ;) Hitti alveg heilan haug af fólki sem ég þekki og kynntist fleirum en það og var það alveg æðislegt einsog alltaf :)

En ég veit ekki alveg hvað skal ropa til ykkar meira núna þannig að ég ætla að segja þetta gott í fyrsta skiptið :)

Kveðja ég ;)

1 comment:

. h a y l . said...

hi! care to link me? =)

http://stay-home-and-earn-online.blogspot.com/